 |
Lögmannsstofan var stofnuð af Gesti Jónssyni árið 1975. Stofan er nú í eigu Gests Jónssonar (frá 1975), Ragnars Halldórs Hall (frá 1992), Gunnars Jónssonar (frá 1992), Harðar Felix Harðarsonar (frá 2001), Einars Þórs Sverrissonar (frá 2005), Gísla Guðna Hall (frá 2006) og Geirs Gestssonar (frá 2008). Á stofunni starfa 5 löglærðir fulltrúar Almar Þór Möller, hdl., Anna Þórdís Rafnsdóttir, lögfr., Hilmar Gunnarsson hdl., Jóhannes Eiríksson hdl. og Ólafur Freyr Frímannsson hdl. Aðrir starfsmenn eru Anna Fjalarsdóttir, Halldóra Harðardóttir, Helena Erlingsdóttir og Védís Eva Guðmundsdóttir. Meðal viðskiptavina Markarinnar lögmannsstofu eru fjölmörg fyrirtæki, opinberar stofnanir og einstaklingar. Eigendur og löglærðir fulltrúar Markarinnar lögmannsstofu hafa mjög fjölþætta reynslu af lögmannsstörfum og lögfræðilegri ráðgjöf og veita viðskiptamönnum, innlendum sem erlendum, þjónustu á flestum sviðum lögfræðinnar. Mörkin lögmannsstofa er félagi í alþjóðlegum samtökum lögmannsstofa, State Capital Group. Með því getur Mörkin lögmannsstofa tryggt viðskiptavinum sínum aðgang að framúrskarandi lögmannsþjónustu um heim allan.
|
 |  |